TIL BAKA!

Ég vill þakka þeim kærlega sem stóðu við bakið á mér úti í eyjum og koma nálægt því að þetta myndi ganga upp!

Í tjöldum vakna víða

við fyrsta hanagal.

Drekka, reykja og ríða

á ralli í Herjólfsdal.

(Ágúst Marinóson)

    Þá er þjóðhátíð 2002 búinn og ekki er hægt að segja annað en að hún verið ógleymanleg þar sem veðrið var hreint út sagt geggjað :)

    Þrátt fyrir mjög slæmt verður skemmtu menn sér almennt mjög vel og er ég tiltölulega sáttur enda var þetta ný hlið á þjóðhátíð, mikil drulla og íslenskar aðstæður eins og best er á kosið.

   Ég vill byrja á því að þakka þeim sérstkalega sem sjá um COKE umboðið út í eyjum þar sem þeir reyndust mér ótrúlega vel, redduðu því sem redda þarf og verð ég þeim ævinlega þakklátur.

    Allt það starfsfólk sem kom að hátíðin stóð sig með stakri prýði og sýndi það sig best þegar veður er eins og þetta var hvað það er ótrúlega vel skipulagt og dugnaður framm í fingurgóma.

Að elska, dufla og deyja

er drengja hérna val

Við úrval margra meyja

sem mæta í Herjólfsdal.

(Ágúst Marinóson)

Þegar ég var búinn að heyra af því að það væri fullt að liði upp í íþróttahöll sem átti ekkert þurrt, þá hringdi ég í þá sem eru umboðsaðila fyrir Coke og Carlsberg, og eftir gott spjall var ákveði að ég færi og myndi gefa þar bæði peysur og boli merkta Carlsberg og hrappur.is. Ég vill þakka þeim fyrir stuðninginn í því máli.

Við drekkum fast og deyjum

og djöflumst út í Eyjum

Með gömlum gleðimeyjum

er gandi hleypt á skeið.

(Ágúst Marinóson)

ÉG SKEMTI MÉR KONUNGLEGA OG EITT ER VÍST ÉG KEM AFTUR AÐ ÁRI J

TIL BAKA!

Myndasería 1

Myndasería 5

Myndasería 2

Myndasería 6

Myndasería 3

Myndasería 7

Myndasería 4

Myndasería 8

Vídeó 1 (2.3mb AVI)

Vídeó 3 (3.7mb AVI)

(Á móti sól)

Vídeó 2 (3,7mb AVI)

(Írafár)