Vestmannaeyjar 99

Í byrjun ágúst var brunað til Vestmannaeyja á þjóðhátið og var farið með Herjólfi á fimmtudagskvöldi þannig að hægt væri að byrja helgina sem allra fyrst á því að fara á húkkaraballið í íþóttahöllinni í eyjum þar sem Ensími og SSSÓL spiluðu fyrir að ég held tvöþúsund manns til 5 um morguninn og get ég ekki valið hvor þeirra var betri, Ensími eða gömlu jálkarnir SSSÓL. Á Föstudag var svo byrjað snemma um morguinn og hellt í sig, eftir að hafa farið í verstu sundlaug sem ég hef komið í enda var hún brimsölt og skítköld.

Á föstudagskvöldi var kveikt í risa brennu upp á hól og spiluðu hljómsveitir til 6 um morguninn alla helgina nema á mánudag þá spiluðu Stuðmenn til klukkan 9 um morguninn á stóra sviðinu.

Á laugardagskvöldi var sú flottasta flugeldasýning sem ég hef séð á ævinni, enda heyrði maður að það hafi verið puðrað upp fyrir rúmar 20 millur og svo var haldið áfram með hana á sunnudagskvöldinu og þá voru komið rúm 10.000 þúsund manns í dalinn og stemmningin var geggjuð og eitt er víst að ég ætla að reyna eins og ég get að fara þarna aftur á næstu árum því þetta var hrikalega gaman og skil ég ekki þá sem fara á Akureyri um vesló því þegar á endann er komið þá er það ódýrara að fara til eyja.

Eitt vandamál kom upp þegar ég var að velja mér myndir að á flest öllum myndunum var hlutur sem ég hef ekki áhuga á að láta sjá mig með á netinu, þannig að þær eru færri en ég hefði viljað!

Sá siður er í eyjum að allir sem eiga vörubíla breyta þeim í svokallaða pallabíla og getur maður rúntað um Vestmannaeyjar og látið keyra sér á milli helstu skemmtistaðanna og í dalinn fyrir 200 krónur og getur þú farið út hvar sem þú villt eða uppí hvar sem þú villt og hafa þeir flestir að geyma feyki öflugar hljómflutingsgræjur þannig að það er eins og að vera í besta partýi þegar maður er á rúntinum. Þó það hafi verið í flest skiptin, þegar félagi minn tók rúnt, að það voru svo margar konur með litla krakka í bílnum þannig að það mátti ekki heyrast múkk.

Hér er einn sá mesti villimaður sem var í eyjum, enda er Stebbi frægur fyrir að gera það sem flestir aðrir gera ekki og vakti hann mikla lukku þarna klæddur eins og versti Skoti, þó held ég að það sé ekki til siðs hjá Skotum að vera með fléttur í hárinu eins og einhver nergra kerling.

Þegar ég var að fara í Herjólf voru þar fjórir gaurar sem voru allir klæddir í hænubúning sem á stóð "I FEEL LIKE CHICKEN TO NIGHT" og voru þeir á Lödu sem var búið að fyðra með tveimur dúnsængum, en eini gallinn var sá að hún bilaði þegar þeir voru að fara um borð þannig að þeir ýttu henni bara á þjóðhátíðina og vöktu mikla athygli, enda voru þeir feyki flottir.