Drykkjumusteri

 

Píramídi er lagður úr spilum (bakhliðin upp) með 5 spil í neðstu röð, 4 í næstu, svo 3, 2 og 1 á toppnum.  Sá sem er fyrstur byrjar á að fletta einu spili við og ef upp kemur tía eða hærra á hann að drekka.  Ef spilið er lægra á næsti að gera.  Þau spil sem búið er að fletta við á að leggja ný spil yfir jafnóðum.  Tía er 1 sopi, gosi 2, drottning 3, kóngur 4 og ás 5 sopar.